Lokar augum blám

Á miðju sumri hverfa tveir ungir kajakræðarar sporlaust vestur í Dýrafirði. Rannsóknarlögreglumaðurinn Bergur er fluttur á Flateyri og tekur málið að sér, ásamt fyrrverandi samstarfskonu sinni, Rögnu, sem er kölluð vestur. Á sama tíma vinnur par að endurbótum á gömlu húsi á Flateyri. Eftir ógæfusöm ár í höfuðborginni þrá þau kyrrlátt líf á fallegum stað en húsið reynist eiga sér nöturlega sögu.

Hélt mér á tánum, en á sama tíma tímdi ég ekki að klára hana í einum rykk

Skáldsagan Lokar augum blám gerist á sjö dögum á Vestfjörðum. Hvarf tveggja manna ýtir af stað lögreglurannsókn. Í stuttum og snörpum köflum kynnast lesendur umtalsverðum fjölda fólks á ýmsum stöðum. Innbyrðis tengsl kaflanna skýrast smám saman og með þeim fléttar höfundur atburðarás vikunnar haganlega, ásamt atriðum úr forsögu og fyrri kynnum persónanna. Velheppnað raunsæissnið sögunnar byggist meðal annars á hinu vestfirska umhverfi sem höfundur endurskapar af staðarþekkingu og næmni sem skilar sér í vel skrifuðum texta. Spennan í verkinu er hins vegar tengd tímanum. Hann lætur ekki hemja sig og teygir sig út fyrir viðburði þessarar viku, aftur í fortíð þar sem reynast vera sár og draugar er virðast ætla að vakna til nýs lífs.
Umsögn lokadómnefndar
Blóðdropinn 2025

Item Added to Cart!

What would you like to do next?

View Cart