Athafnamaður finnst látinn í heitum potti við heimili sitt í Laugardalnum og fljótlega beinast spjótin að vinum hans og samstarfsfélögum. En rannsóknarlögreglukonan Ragna er eldri en tvævetur í faginu og skarpt og næmt innsæi segir henni að lausnin sé flóknari en svo. Brátt er Ragna komin á slóðir sem liggja aftur til fortíðar og á heimavist vestur á fjörðum. Hvaða leyndarmál búa í djúpinu?
… vel að verki verið … raunsæ og spennandi.
Í djúpinu er vel skrifuð og áhugaverð spennusaga sem kemur á óvart.