Sif dvelur ein í sumarbústað vestur á fjörðum við ritgerðaskrif. Umfjöllunarefnið eru draugar og vættir dalsins sem aldrei hafa raskað ró hennar fyrr en nú. Sem betur fer er æskuvinur ekki langt undan og jafnvel ferðamaður í vanda veitir visst öryggi – þar til allt sveipast skyndilega óvissu og Sif veit ekki lengur hverju er hægt að treysta.
Ljóst er að hér er kominn nýr og spennandi höfundur með góða tilfinningu fyrir framvindu sem gaman verður að fylgjast með.